04.01.04

Úrvinda

Hrikalega er ég þreyttur, jólafríið situr eflaust ennþá í mér. Ætla að reyna að sofa vel í nótt og koma sólarhringnum í eðlilegt horf á ný.

Var að endurbæta þyngdarsíðuna örlítið. Núna er hún ekki lengur smíðuð í hvert skipti sem hún er skoðuð heldur bara þegar ég set þyngdartölu inn. Setti líka inn meðaltal síðustu 10 daga sem er lykiltalan í þessu öllu saman. Næsta skref er að fá PILGraph til að virka svo ég geti uppfært grafið sjálfkrafa á sama máta. Nenni ekki að pæla í því núna. Djöfull er ég annars feitur, átakið er alveg að fara að byrja :-)

04.01.2004 22:31 prívat
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com