Örvitinn

Flugeldafávitar

Djöfulsins þroskaheftu getulausu fávitar og lúðar.

tívolíbomba

Í nágrenninu dunda þeir sér við að sprengja síðustu sprengjurnar, skjóta upp öllu sem hægt er að skjóta flissandi og slefandi eins og fávitar. Við þessu er ekkert að gera, þetta . Óskandi væri að sprengjufárinu væri lokið en svo er ekki, næstu kvöld mun stöku bomba hrista hverfið en svo líður þetta hægt og rólega út.

Ég hef aldrei verið mjög hrifinn af flugeldum en varð samt ekkert illa við þetta áður en sprengingar fóru að halda vöku fyrir stelpunum mínum kvöld eftir kvöld. Nú glymur í hverfinu meðan nágrannarnir sprengja kökurnar sem þeir keyptu á útsölu, ég óska þess næstum því að þetta springi framan í þá svo þær hætti rétt á meðan þeir skjótast á slysó, hef lúmskan grun um að í næsta nágrenni við mig búi skátar miðað við hamaganginn í kvöld og ekki virðist þetta ætla að hætta. Ég þoli ekki þessar kökur sem skjóta endalausum kínverjum, óþolandi helvíti.

kvabb
Athugasemdir

Ásgeir Þ - 08/01/04 20:00 #

Matti minn, svona talar maður ekki um fólk. Kveðja, ÁÞ

Matti Á. - 08/01/04 21:35 #

Hvaða vitleysa pabbi, einmitt svona talar maður um ónafngreint fólk þegar maður er orðinn pirraður á sprengingum og þarf að fá útrás. :-)