Þessi skjár er ekki alslæmur þrátt fyrir að ég sé ekki með stafrænan útgang á skjákorti og sé því að keyra hann í skalaðri upplausn (1280x1024). Ég hlakka til að sjá hvernig hann virkar í réttri upplausn, ég gat ekki notað 1600x1200 á 19" dell túbuskjánum sem ég var með, veit ekki hvort það var skjárinn eða sjónin í mér!
Nú þarf bara nýja tölvu svo ég geti notað báða í einu. (vinnuvélin mín er með skjákorti á móðurborði og ekki með AGP rauf)
|
www.flickr.com
|