Örvitinn

Búið um sig í sturtubotni

Eftir að Kolla og Inga María voru komnar úr baði í kvöld léku þær sér saman fyrir svefninn. Við vorum frekar lengi að koma okkur upp að svæfa þær og þegar ég kom upp mætti ég Kollu með fangið fullt af fötum. Inga María var inni í sinu herbergi að róta í fataskápnum. Þær systur höfðu þá tekið upp á því að útbúa svefnaðstöðu í sturtuklefanum. Búnar að fara með sængur og kodda og voru að flytja megnið af fötunum sínum yfir. Maður getur ekki annað en brosað að þessum litlu gröllurum og því sem þeim dettur í hug, þó maður þurfi að ganga frá eftir þær.

Kolla og Inga María undir sæng í sturtubotni
fjölskyldan