Örvitinn

Svefnpurkur

Ég, Kolla og Inga María bættum met í morgun þegar við sváfum til tíu. Það er löngu liðin tíð að ég geti slökkt á vekjaraklukkunni og treyst því að stelpurnar vakni þokkalega snemma, núorðið þarf ég að rífa mig á lappir með viljastyrkinn einan að vopni og draga stelpurnar á fætur. Ekki skil ég hvernig Gyða og Áróra fara að því að vakna fyrir rétt rúmlega sjö.l

Kom stelpunum á leikskólann rétt fyrir ellefu, stimplaði mig inn í vinnuna klukkan 10:59:27. Það er ekki til eftirbreytni.

dagbók