Örvitinn

Ferðavélin fubar

Ekki er á það bætandi, ferðavélin er komin í ólag. Þegar ég kom heim úr boltanum var helvítið hætt að virka, sama vesen og áður, sambandsleysi veldur því að hún hleður sig ekki. Það er bókstaflega laus skrúfa í henni og í raun ekkert annað að gera en rífa hana í sundur og laga þetta. Litlar líkur á að hún komist aftur í gang.

Ég nenni ekki að standa í þessu, er að spá í að úrskurða hana dauða og láta þar við sitja. Bjarga gögnum af disknum, aðallega nýlegum myndum, einhvern tíman síðar.

tölvuvesen