Örvitinn

Ýmsar myndir frá Janúar

Kolla og Inga María hlæja

Ég setti inn nokkrar myndir frá síðasta mánuði á myndasíðuna.

Hef reyndar verið frekar latur við myndatökur í þessum mánuði, held ég þurfi að fara að eignast nýja myndavél :-)

Ég sé líka að ég þarf að fara að skoða myndaforritið mitt, ég er ekki nógu sáttur við útkomuna þegar myndir eru minnkaðar - verða agalega grófar og óskýrar. Ég er að nota PIL og þarf að skoða hvort það er eitthvað búið að uppfæra það eða hvort ég get fundið aðferð til að gera þetta betur með því.

01:07
Jújú, það er hægt að gera þetta mun betur með PIL sé ég núna - búið að bæta við flaggið í resize og thumbnail aðgerðirnar.

prívat
Athugasemdir

sirry - 02/02/04 13:53 #

Hvað þarf maður að borga þér fyrir að taka út myndirnar af mér ? :C)

Matti Á. - 02/02/04 13:57 #

Hehe, það er ekkert að þessum myndum ;-)