Örvitinn

Það sem við getum sofið

Ég, Kolla og Inga María fórum á fætur klukkan níu í morgun - þessar stelpur eru agalegar :-P Fengum okkur hafragraut heima og vorum mætt rúmlega tíu í leikskólann.

Ég fór alltof seint að sofa eins og svo oft áður en hef góða afsökun fyrir því að sofa yfir mig í morgun. Mig dreymdi nefnilega að ég vaknaði! Fór á fætur, tók ferðavélina úr sambandi, en hún var á náttborðinu, af hverju veit ég ekki. Rölti svo fram og missti ferðavélina niður tröppurnar, fékk alveg áfall en komst að því að hún hafði lagast við fallið - a.m.k. gekk hún á rafhlöðu eftir það en skjámyndin var örlítið skökk.

Rétt eftir þetta hringdi Gyða til að reka á eftir okkur, hálftíma síðar fórum við á fætur.

fjölskyldan