Örvitinn

Kolla með ælupest

Kolla var ælandi í nótt og er heima í dag. Hún er sem betur fer orðin svo stór stelpa að hún vakti pabba sinn í tvígang, fór með honum fram á bað og ældi í klósettið. Munar nú miklu þegar börn eru ekki að æla yfir sig í rúminu. Hún er nokkuð hress núna - búin að borða ristað brauð og horfir á barnatímann.

fjölskyldan