Örvitinn

Nú er ég veikur

Tók mér frí í vinnu í dag vegna veikinda, var alveg hrikalega slappur í gær en fór samt í vinnuna, var svo alveg búinn á því.

Veit ekki hvað er að hrjá mig, því ég er nokkuð viss um að ég er hitalaus, var með hausverk í allan gærdag og stífur í hálsi í gærkvöldi.

Líður þó mun betur núna eftir að hafa sofið frameftir, ætla að slaka á í dag og sjá hvort ég nái ekki að jafna mig almennilega á þessu.

prívat