Örvitinn

Rólómyndir


Kolla og Inga María fóru út að róla og renna sér eftir að þær komu heim frá leikskólanum. Kolla er orðin mjög klár að róla en Inga María þarf aðstoð - skipar því pabba sínum að ýta sér.

Þetta er ekkert sérstaklega skemmtileg aðstaða hér fyrir framan húsið okkar en það stendur til að endurnýja svæðið bráðlega - það er búið að safna fyrir framkvæmdum í nokkur ár og kominn þokkalegur sjóður held ég. Rólurnar eru ágætar en rennibrautin er frekar vafasöm, það þarf líka lyfta Ingu Maríu svo hún komist í hana þar sem hún er frekar stór. Hér rétt fyrir neðan, svona tuttugu metra frá útidyrunum er svo annar róló með fínum sandkassa og smá kastala með rennibraut en þar er engin róla.

Ég tók nokkrar myndir af stelpunum og bætti inn á myndasíðuna.

prívat