Örvitinn

Tíminn líður

Ég er nú meira gamalmennið - ekki ennþá kominn á fullt ról eftir helgina. Sleppti ræktinni í gærkvöldi en ætla að drífa mig í kvöld og ekkert múður með það!

Tíminn líður, rétt rúmar tvær vikur í Londonferð, svo Manchester mánuði síðar og eftir það er næstum komið sumar. Ekki er ennþá komið á hreint hvert verður farið í sumarfríinu, en áfangastaðurinn verður líklega á meginlandi Evrópu.

Nóg að gera í vinnunni, fyrsta reglan í forritun er að þegar maður lagar eitt skemmir maður eitthvað annað. Ójá, maður á að vanda sig í raunumhverfi!

Ýmislegt