Örvitinn

Efahyggjuorðabókin á Íslensku

Efst á hinni mögnuðu síðu Skeptic's Dictionary er komin vísun á Íslensku þýðinguna. Ég sendi Robert Carrol, höfundi síðunnar, tölvupóst í gær og gaf honum upp statusinn á þessu og hann bætti inn vísun um leið. Fékk leyfi hjá honum til að þýða og birta greinar rétt eftir áramót.

Við erum ekki búnir að þýða margar greinar og ætlum að gera þetta í rólegheitum, en ég er afskaplega ánægður með að þetta sé komið í gang. Enn sem komið er, er greinunum raðað í tímaröð, en þegar þær eru orðnar nægilega margar verður þetta stokkað upp og sett í stafrófsröð, jafnvel á sér vefsíðu.

efahyggja