Örvitinn

Hversdagurinn

Jæja, þá er maður kominn aftur í gráann hversdagsleikann. Komum heim klukkan eitt í nótt, fluginu seinkaði um tvo tíma. Höfum ekki ennnþá hitt stelpurnar, þær gistu hjá tengdó í nótt. Það verður gaman að hitta þær á eftir.

Ég fór beint á fund í miðbænum þegar ég mætti í vinnu, kom svo við hjá starfsmannahaldi og skrifaði undir fastráðningarsamning. Ágætt að vera kominn með það á hreint, þó enn þurfi að ræða ýmis atriði.

Ætla að skrifa nánar um ferðina í kvöld þegar ég verð búinn að færa myndirnar yfir í tölvuna, það verður svona þriggja tíma ferli. Tók helling af myndum.

dagbók