Örvitinn

Kúkur upp á bak

Stundum vorkenni ég barnlausu fólki að fá ekki að upplifa stemminguna þegar barnið er með niðurgang og bleyju, kúkurinn nær upp á bak og öll föt þurfa að fara í þvottavél.

Sjónvarpsstofan lyktar eins og fjölsóttur útikamar en Ingu Maríu líður betur, það skiptir mestu. Óskaplega er erfitt þegar börnunum manns líður illa.

dagbók
Athugasemdir

Már - 08/04/04 02:38 #

Já kúkur er æði!! Hann hefur alveg öðlast nýja vídd í mínu lífi eftir að strákurinn fæddist, en hann fæddist einmitt með miklum kúkalátum, en það fyrsta sem hann gerði var að kúka duglega yfir ömmu sína ljósmóðurina, í miðri stofunni heima.

Ég finn til með grey Ingu Maríu. Vona að henni fari að líða betur sem fyrst. Hang in there!