Örvitinn

Pantera - Mouth for war

Árni Þór var að ræða um tónlist um daginn og nefndi þar hljómsveitina Pantera til sögunnar í athugasemd.

Seinna þegar ég var farinn að fíla Metallica þá kynnti hann mig fyrir eðalböndunum Panthera og Sepultura og á ég það honum að þakka að ég fór að hlusta á þær grúppur..

Ég hlustaði mikið á Pantera á tímabili og tengi m.a. útskriftarferð til Cancun 1993 sterklega við Pantera í minningunni. Fyrir helgi rippaði ég svo loks tvo Pantera diska svo ég gæti hlustað á þá í vinnunni.

Ég þurfti að rifja það upp með aðstoð góðra manna og er nú nokkuð sannfærður um að Regin á sök á því að ég fór að fýla Pantera. Samkvæmt mínum heimildum var hann frumkvöðull í boðun fagnaðarerindisins, a.m.k. í vinahópnum ef ekki bara á landinu :-) Ekki ætla ég þó að eigna mér að hafa kynnt Bjarna fyrir Pantera, það er ósennilegt.

Lag dagsins er Mouth for War af plötunni Vulgar Display of Power. Ég hlustaði eiginlega bara á tvo diska með Pantera, Vulgar og svo Cowboys from Hell. Var ekkert að fýla annað með þeim. Mouth for War er upphafslag Vulgar Display of Power og það er ekki hægt að segja annað en að sú plata fari af stað með trukki. Fólk sem er að hafa gaman af System of a down í dag gæti gert margt vitlausara en að verða sér út um Vulgar Display of Power, þar voru á ferðinni ungir, reiðir og reyktir menn.

Þessi færsla skarast nokkuð við síðustu Pantera færslu enda byrjaði ég á því að skrifa þetta sem eina færslu. Stillingaratriði á MT auk kjánalegrar póstsíjunar olli því svo að ég hef ekki getað uploadað laginu fyrr en nú.

Mæli með að fólk lesi textann um leið og það hlustar.

Pantera - Mouth for War ~ 3.6MB

Hér er smá útlendingavörn, notendanafn afurábak ospi, lykilorð afturábak otcaf.

Revenge
I'm screaming revenge again
Wrong
I've been wrong for far too long
Been constantly so frustrated
I've moved mountains with less
When I channel my hate to productive
I don't find it hard to impress

(Pre) Bones in traction
Hands break to hone raw energy
Bold and disastrous
My ears can't hear what you say to me

(Chorus) Hold your mouth for the war
Use it for what it's for
Speak the truth about me
Determined

Possessed
I feel a conquering will down inside me
Strength
The strength of many to crush
Who might stop me
My strength is in number
And my soul lies in every one
The releasing of anger can better any medicine under the sun

(Pre)

(Chorus)

There comes a time within everyone to close your eyes to
what's real
No comprehension to fail
I vacuum the wind for my sail
Can't be the rest
Let others waste my time
Owning success is the bottom line.
Like a knife into flesh
After life is to death
Pulling and punching the rest of duration
NO ONE can piss on this determination
lag dagsins
Athugasemdir

Bjarni Örn - 17/05/04 14:07 #

Vulgar og Cowboys eru frábærar plötur. Hef ekki verið að hlusta mikið á þær síðustu ár. Ég var líka alltaf hrifin af The Badge úr The Crow Soundtrack-inu.
Hver kynnti Pantera fyrir hverjum? Gildir einu hvaðan gott kemur!

Árni Þór - 17/05/04 14:52 #

He he, nú ber vel í veiði. Mouth for War á mp3! Ég var einmitt að tala um hvað ég á mikið af músík á kasettum en ekki CD. Vulgar Display of Power er einmitt þar á meðal, þarf að redda mér þessu dóti á CD svo ég geti sett mp3 öryggisafrit af þeim á tölvuna mína :)