Örvitinn

Forsetinn er hóra

Forseti samtakanna Whore, samtaka þeirra sem vinna í kynlífsbransanum í Vancouver, er hugsanlega hóra. Ef ekki þá þekkir hann vafalítið einhverjar slíkar.

Af hverju fær fólk hland fyrir hjartað þegar einhver talar um forsetann af ónógri virðingu? Er forsetinn guðleg vera? Sameiningartákn þjóðarinnar, látið ekki svona!

Hverjum er ekki sama hvernig talað er um forsetann, forsætisráðherra og allt hitt hyskið?

Það sem mér þykir áhugaverðast er hræsni þeirra sem gera í buxurnar yfir virðingarleysi annarra eina stundina og hrópa svo svívirðingar þá næstu. Er of mikið að fara fram á örlítið samræmi?

pólitík