Það eru til ýmsar brellur sem hægt er að beita í rökræðu þegar maður lendir í þrot. Rökvillur eru af ýmsum toga og oft setur fólk einhverjar slíkar fram óviljandi.
En svo eru aðrir sem nota sömu taktíkina aftur og aftur en eru um leið sannfærðir um að þeir séu málefnalegri en aðrir.
Nú nýverið lenti ég í einum alveg klassískum. Fyrsta sem hann notaði og varð þess reyndar valdandi að ég tók þátt í umræðunni var hneykslun eða óviðeigandi hneykslun, eins og ég kýs að kalla það. Þessi einfalda taktík gengur út á að taka eitthvað aukaatriði í málflutningi andstæðingsins, blása það út eða snúa út úr því og hneykslast svo verulega á þessum dónaskap, tillitsleysi eða hvað maður kýs að kalla það í hvert sinn. Oft fylgir þessu hræsni þar sem sömu aðilar hika ekki við að úthúða mönnum á sama tíma og þeir eru svona óskaplega viðkvæmir. Einhverjir trúmenn hafa af og til notað þessa aðferð í rökræðum við vantrúaða en í þetta skiptið eru þeir saklausir.
Önnur aðferð er að saka andstæðinginn um útúrsnúning við hvert tækifæri, fullyrða að þú sért búinn að svara honum og að hann get greinilega ekki lesið eða kjósi að lesa eitthvað allt annað en þú skrifar. Sá sem rökrætt er við lendir náttúrulega í vanda því hann þarf að greina skrif þín í tætlur til að sýna fram á að þú hafir ekki svarað í raun. Þarna ertu náttúrulega kominn með forskot þar sem þú hefur flækt umræðuna út í tæknilegar flækjur og getur jafnvel bara endurtekið sömu svörin og haldið áfram að forðast kjarna málsins.
Ódýrasta og þreyttasta trixið er svo það að saka þann sem þú rökræðir við um að vilja alltaf eiga síðasta orðið. Þannig getur þú sleppt því sjálfur að svara nokkrum sköpuðum hlut, sérstaklega aðalatriði málsins og skellt skuldinni á hinn aðilann. Hann er greinilega svo þver að hann getur ekki hætt að rífast, sérstaklega ef hann svarar þvaðrinu og sannar þar með fullyrðingu þína um síðasta orðið.
Það er fyndið þegar þeir sem beita þessari taktín kenna sig við sannleikann, þó í raun sé yfirleitt stutt í samsæriskenningarnar á þeim bænum, sérstaklega ef þær henta pólitískt.
Ég verð þó að játa að ég hef dálítið gaman af þessum rimmum, en leiðist þó þegar maður lendir í því að fá allar brellurnar í andlitið í einu.
Auðvitað þýðir lítið að benda sannleiksunnendum á þessa taktík þeirra, þeir vita annað hvort ekki af því að þeir beita henni og munu því neita staðfastlega eða þeir eru meðvitaðir um það og stendur því á sama. (Þett er dæmi um taktík!)
heh, sekur um þessi síðasta orðs trixið, vel meðvitað :) En mér finnst þú í alvöru aldrei geta hætt og var líka að koma með þann punkt. Og ég nennti í alvöru ekki að rífast meira um þetta, fannst ég alveg vera búinn að koma mínu frá mér.
Hvað aðferð tvö varðar verð ég að lýsa mig saklausan því mér finnst þú í raun ekki lesa nema brot af því sem ég skrifast á við þig. Og skilja hitt stundum frá furðulegum vinkli. Og nei, ég ætla ekki að fara að greina öll okkar samskipti í tætlur til að finna fyrir þig dæmi :)
Og ég er hneykslaður á stjórnvöldum á Íslandi og er ekki einn um það.
Ég hef á tilfinningunni að ásakanir þínar um að ég lesi eitthvað vitlaust úr því sem þú skrifar snúist að einhverju leyti um misskilning, við séum ekki að ræða hlutina á sömu forsendum.
Þegar ég kem með athugasemdir er ég oftar en ekki að ræða tiltekin atriði í skrifum annarra, ekki endilega allt sem þeir segja.
Í þessu tiltekna tilviki hafði ég einungis áhuga á ákveðnu atriði og var ekki endilega ósammála öllu sem þú lagðir fram, eins og sjá má í síðustu svörum mínum ( síðasta orðinu ;-) )
|
www.flickr.com
|