Örvitinn

Aftur í ræktina

Fór loksins í ræktina í kvöld, hef ekki farið í að minnsta kosti þrjár vikur. Veit ekki hvað veldur, ég virðist aldrei hafa tíma.

Skaust semsagt áðan, hitaði upp á hjóli og tók svo létt á lóðunum. Ætlaði að hjóla í 20 mínútur í lokin en var þá rekinn út, Sporthúsið lokar klukkan tíu á sumrin. Fann ekkert fyrir kálfanum sem ég tognaði í um daginn, verð vonandi orðinn góður fyrir næsta leik með Henson á Sunnudag.

Ég þarf að fara að taka á þessu, er í agalegu formi og alltof feitur þessa dagana, ét of mikið og hreyfi mig alltof lítið, þetta er ekkert flókið :-) Á ekki von á að þrjár vikur á Ítalíu bæti ástandið.

heilsa
Athugasemdir

Sirrý - 16/06/04 15:13 #

Til hamingju með að hafa farið í ræktina :C) Duglegur strákur

Matti Á. - 16/06/04 15:26 #

Ekki óska mér til hamingju strax, bíðum þar til ég mæti aftur í ræktina fljótlega :-)