27.06.04

Hádegismatur og sund

Eyddum deginum í sundlauginni ađ mestu leyti, kíktum í hádegismat á veitingastađ spölkorn frá húsinu.

Inga María og Kolla sváfu frameftir, vöknuđu klukkan níu. Viđ fórum fram og gáfum ţeim morgunmat, kíktum í moggann sem Stebbi og Margrét tóku međ sér. Nćsta klukkutímann fór fólki ađ tínast fram. Gyđa og Gunna röltu á veitingastađinn sem er í nćsta húsiđ viđ okkur og pöntuđu borđ í klukkan eitt. Viđ ákvađum ađ skella okkur í sund og fórum í laugina rétt rúmlega ellefu. Vatniđ var reyndar ansi kalt en sum okkar létu sig hafa ţađ og busluđum. Vorum í lauginni til korter yfir tólf, fórum ţá ađ hafa okkur til fyrir hádegismatinn.

Hádegismaturinn var hálfgert ćvintýri. Stađurinn er eins og áđur kom fram í nćsta húsiđ viđ okkur, garđarnir eru samliggjandi en veggin á milli ţannig ađ ekkert sést nema mađur teigi sig fyrir endann eđa gćgist yfir. Ţađ tekur um fimm mínútur ađ rölta međfram veginum ţví stađurinn er í nćstu innkeyrslu. Ţetta var ansi stór stađur og fullur af heimamönnum, ég er nokkuđ viss um ađ viđ vorum einu útlendingarnir á stađnum ţetta sunnudagshádegi. Stúlkan sem ţjónađi til borđs talađi ágćta ensku sem er frekar fágćtt á ţessum slóđum. Viđ ákváđum ađ fá okkur sitt lítiđ af hverju. Í forrétt (antipasti) var bruschetta (brauđ međ tómat, olíu og basil), brauđ međ kćfu, djúpsteikt pasta (held ég), kjötsneiđar (parma skinka, salami og eitthvađ reykt kjöt). Ţvínćst komu milliréttir, fengum ravioli međ kjötfyllingu, núđlur međ kjötsósu, súpu međ baunum og brauđi, svepparisotto. Í ađalrétt var svo allskonar kjöt, međal annars kjúklingur, kanína og ýmislegt fleira. Í eftirrétt fengum viđ ís og köku. Međ ţessu drukkum viđ tvćr flöskur af rauđvíni úr hérađinu, vatn og og sódavatn. Reikningurinn fyrir 10 manns var 120 evrur! Eini galllinn viđ ţetta var hitinn sem var óbćrilegur á tímabili. Inga María og Kolla áttu dálítiđ erfitt međ ađ vera ţćgar og viđ ţurftum ađ rölta međ ţćr út nokkrum sinnum. Ţetta var náttúrulega ansi langur hádegismatur og ţćr voru orđnar ansi ţreyttar.

Eftir mat röltum viđ aftur í húsiđ og slökuđum á í smá stund. Ćtluđum ađ setja DVD mynd af stađ í ferđavélinni fyrir stelpurnar en komumst ađ ţví ađ klóin passađi ekki í neina innstungu í húsinu. Ţetta er sama tegund af kló, öll önnur tćki sem viđ erum međ passa, en klóin á ferđavélinni er ađeins ţykkari. Náđum ađ lokum ađ tengja hana inni í eldhúsi og getum ţví hlađiđ rafhlöđuna ţar.

Ásmundur og Gunna skelltu sér í bíltúr en viđ hin fórum aftur í sund. Laugin var búin ađ hitna nokkuđ og stelpurnar var afskalega duglegar viđ ađ hoppa út í, svo duglegar ađ viđ vorum eiginlega búin ađ fá alveg nóg af. Aftur og aftur og aftur var hoppađ út í, fariđ upp á bakka og hoppađ út í. Ásmunur og Guđrún komu fćrandi hendi úr bíltúrnum, versluđu međal annars allskonar sundlaugardót, báta og litla uppblásna laug til ađ hafa í garđinum. Einnig versluđu ţau kol og viđ grilluđum hamborgara í kvöldmatinn. Ég hef ekki grillađ á kolagrilli í langan tíma en ţetta heppnađist ágćtlega. Ég borđađi fyrir framan sjónvarpiđ og horfđi á mína menn, Tékka, gjörsigra Dani á EM. Baros skorađi tvö frábćr mörk og er greinilega ađ slá í gegn á mótinu. Allir leikir á fjórđungsúrslitum EM fóru eins og ég hefđi kosiđ og ţví er alveg ljóst ađ mínu hógvćra mati ađ Tékkar munu landa titlinum í ţetta sinn (post hoc ergo procter hoc).

Myndir dagsins

27.06.2004 09:00 Toskana 2004
Mynd sem Kolla teiknađi af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com