Örvitinn

Vantar lokaþætti 24

Ég fylgdist spenntur með síðustu seríu 24 á Stöð2 en yfirgaf landið og missti af síðustu þremur þáttunum. Ætlaði að stilla vídeó á upptöku en klikkaði á því - sem betur fer reyndar - þar sem rafmagnið fór af þegar við vorum úti og það hefði verið ennþá meira svekkjandi en það var. Hvað er annars málið með að enda svona seríu á helsta sumarfrístíma landans?

Vitið þið um einhvern sem á síðustu þrjá þættina í þriðju seríu af 24 á vídeó eða tölvuskrá? Ég borgaði Stöð2 fulla áskrift þegar þessir þættir voru sýndir og fæ varla krónu endurgreidda þó ég hringi í þá og segist hafa misst af þáttunum :-) Þetta sýnir annars ágætlega hversu úrelt aðferð sjónvarp er til að dreifa svona efni því hún krefst þess að áhorfandinn sé til staðar þegar dreifingaraðila hentar en ekki öfugt. Af hverju get ég ekki farið á heimasíðu stöðvar2, slegið inn kennitölu og lykilorð (eins og ég geri þegar ég breyti áskrift) og downloadað hvaða efni sem er enkóðuðu þannig að einungis ég geti skoðað það? Ætli slíkt verði einhvern tíman mögulegt?

Hvað um það, ég er farinn af leið. Getur einhver reddað mér síðustu þremur þáttum þriðju seríu 24 ? Svarið í kommenti eða sendi mér póst með því að smella á link neðst á síðunni um mig.

menning
Athugasemdir

Matti Á. - 19/07/04 12:18 #

Frábært, takk fyrir það.