Ég er að drepast í bakinu :-( Fæ stingandi verk í mjóbakið með reglulegu (og stuttu) millibili. Djöfull er þetta fúlt, á maður að fara að éta verkalyf útaf svona andskota?
Held ég sitji rétt í vinnunni, það beið mín nýr skrifstofustóll þegar ég mætti aftur til vinnu eftir sumarfrí, en ég er oft í afkáranlegri stöðu í sófanum fyrir framan sjónvarpið heima.
Líklega hefur léleg mæting í líkamsrækt og skortur á hreyfingu síðustu mánuði haft eitthvað að segja. En fjandakornið, mér leiðast þessir verkir.
Ég get mælt með hómópata.
Ég held að fjarheilun myndi henta mér betur, verð að passa mig að horfa á Ómega í kvöld, þeir eru alltaf að lækna einhverja bakverki :-)
Ég mæli með jóga fyrir bakveika. Ég var skökk af bakverkjum í hálft ár, en eftir að ég prófaði byrjendajóga sérhannað fyrir bakveika, lagaðist bakverkurinn og ég hef viðhaldið góðu bakástandi með því að taka smá jógasessjón þegar ég finn að í óefni stefnir. Ég er sumsé frelsuð, hah!
Rodney Yee gerir frábær jógamyndbönd og er með alveg lágmark spirítjúalisma og meiri svona íþrótta anda á teipunum hjá sér en flestir aðrir. Jóga er nefnilega eiginlega bara teygjuleikfimi.
Ég hef haft ákveðna fordóma gagnvart jóga útaf þessum tengslum við spíritisma en þarf kannski að skoða það nánar.
Annars tók ég tvær verkjatöflur í kvöld og hætti að finna fyrir bakverkjum - hefði átt að taka þær miklu fyrr :-|
Heldur þú að þú sért nokkuð með hríðar ?? Annars mæli ég með íbúfeni frekar en öðrum verkjatöflum þar sem þær virka á bólguna og svo er bara að fara að koma sér í ræktina er það ekki. Ohh hvað það er auðvelt að gefa svona ráð.
|
www.flickr.com
|