09.08.04

Allt að verða vitlaust hjá Liverpool

Það er rosalegt að fylgjast með Liverpool fréttum þessa dagana, maður veit ekki í hvorn fótinn maður á að stíga.

Kíki á Liverpool bloggið á hálftíma fresti til að sjá hvað er að ske og Liverpool fréttayfirlitið er opið í bakgrunni.

Það kom mér í opna skjöldu að Murphy skyldi vera seldur til TottenhamCharlton, nú eru menn farnir að ræða um að Owen sé á leið til Real og Beckham komi í hina áttina! Þetta kemur í ljós annað kvöld, vegna þess að ef Owen spilar úti í Austurríki er ljóst að hann fer ekki neitt.

Þetta minnir mig á það þegar Zidane var orðaður við Liverpool fyrir nokkrum árum, þá refreshaði maður Liverpool fréttasíðurnar á tíu mínútna fresti til að athuga hvort eitthvað væri að gerast í málinu, auðvitað gerðist ekki neitt eins og allir vita :-)

Þetta verður vonandi allt komið á hreint bráðlega, þangað til mæli ég með Liverpool blogginu.

09.08.2004 12:21 boltinn
Athugasemdir

Arnaldur - 09/08/04 23:41 #

Seljum Murphy, Finnan, Diouf, Diao, Hamann og Owen! Hahahahaha, það væri sérdeilis vandað.

Matti Á. - 10/08/04 10:53 #

Þetta er að minnsta kosti áhugavert :-)

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com