Örvitinn

Enski boltinn rúllar af stað

Jæja, þá er komið að því, enski boltinn af hefjast á skjá einum. Liverpool mætir Tottenham á eftir og ég er að farast úr spennu, djöfull er þetta gaman.

Skjár einn fer reyndar hrikalega af stað, í þætti fyrir leik eru Bjarni Fel og Ómar Ragnarsson mættir í viðtal. Ómar Ragnarsson, give me a break :-| Ég hef engan áhuga á sögu knattspyrnunnar á Íslandi akkúrat núna, ég vil heyra rætt um enska boltann, hvað hefur gerst hjá liðunum og rætt um leikinn sem er að fara að hefjast.

Jæja, þeir ætla að nota síðasta korterið fyrir leik til að ræða deildarkeppnina sem er að hefjast. En skjár einn, aldrei aftur Ómar Ragnarsson.

boltinn