Örvitinn

Myndir úr brúðkaupinu

Auður JörundsdóttirEr búinn að setja inn nokkrar myndir úr brúðkaupinu. Þetta er ekki nema brotabrot af myndunum, ég valdi úr myndir sem tengjast mér og mínum þar sem það á meira erindi á þessa síðu. Bæti fleiri myndum inn á næstu dögum, af nógu að taka.

Tók flestar með vélinni minni en nokkrar tók ég með lítilli Canon Digital Ixus vél sem ég fékk lánaða hjá tengdaforeldrum mínum. Ósköp handhæg og skemmtileg vél en það pirrar mann samt rosaleg hversu hægvirk hún er þegar maður er vanur alvöru myndavél :-)

Sleppi því að setja fyllerísmyndirnar hér inn og svo er Gyða búin að banna mér að setja inn myndina af blóðuga gaurnum í bænum. það er samt dálítið flott mynd.

Sem betur fer var annar ljósmyndari á staðnum, því ég náði engum mjög góðum myndum af brúðhjónunum. En ég náði nokkrum sæmilegum myndum um kvöldið.

fjölskyldan myndir prívat