Örvitinn

Villur

Það er merkilegt hversu einfaldar og lítilfjörlegar flestar forritunarvillur eru eftir að maður er búinn að uppgötva þær.

Hef verið að dunda mér við að skrifa drög að grein um villumeðhöndlun, klára hana seint og síðar meir. Eða aldrei. Uppgötvaði í dag krítíska villu eftir sjálfan mig sem er alveg fyrirtaks sýnidæmi í þann pistil. Mikið væri þetta líf einfaldara ef ég sleppti því bara að framleiða villur til að byrja með.

forritun