Örvitinn

Flutningar

Foreldrar mínir og bróðir eru að flytja, ég fór í gær og bar nokkra kassa. Alvöru flutningarnir verða á eftir.

Stebbi og Margrét eru líka að flytja þessa dagana þannig að það verður nóg að gera.

Ég er ekki í neitt rosalega góðu standi fyrir flutninga, frekar aumur í kálfa og bakið á mér hefur oft verið í skárra ástandi. Sjáum til hvernig ég kem út úr þessu brölti.

Jóna Dóra, Óttar og Ásdís Birta eru búin að kaupa sér íbúð í Flúðaseli og flytja bráðlega.

Hvað er málið með alla þessa flutninga, getur fólk ekki bara búið heima hjá sér :-P

dagbók