Það er ekki laust við að ég sé kominn með fiðring í magann útaf leiknum á eftir. Dauðstressaður en um leið vongóður.
18:40
Þessi liðsuppstilling leggst vel í mig, Alonso á miðjunni í stað Hamann. Jafnvel þó Hamann hafi spilað vel undanfarið vona ég að Alonso nái að leysa hann af og gott betur.
23:40
Glæsileg frammistaða hjá Liverpool í kvöld. 2-0 sigur en leikurinn hefði hæglega getað endað 4 eða 5 - 0 ef menn hefðu nýtt dauðafæri. Menn geta talað um að Monaco sé með veikt lið og hafi misst marga sterka menn, en þeir mættu á Anfield til að verjast en áttu aldrei séns. Liverpool lið síðustu ára hefðu átt erfitt með að brjóta niður vörn þeirra í kvöld.
Xabi Alonso er leikmaður að mínu skapi.
|
www.flickr.com
|