Örvitinn

Hræsni hommahatarans

Ég hef varla undan við að vísa á fínar greinar hjá Kristjáni Erni.

Rétta orðið er HRÆSNI!

Þvílík hræsni! Þvílíkur hroki! Þessir djöfulsins ofur-biblíusölumenn sem eru með þætti á Omega og tvær útvarpsstöðvar á Íslandi eru nákvæmlega það sem er að heiminum í dag! Þessir menn standa á sviði með demantsermahnappa, í sínum 300.000-króna jakkafötum og krókódílaskóm, prédikandi yfir lýðnum sem býr við fátækt og trúir á Jesú Krist af því að það virkilega þarf að trúa á eitthvað. Þessir gæjar hirða peninga grunlausra sakleysingja ... og fyrir hvað? Fyrir að halda því fram að í gegnum þá komist fólk nær Guði?

Hressandi.

Var líka að detta inn góður pistill eftir Birgi á Vantrú. Kíkið á hann líka.

Mygluð mjólk

Kirkjan verður áfram að útiloka samkynhneigða því það liggur í eðli kristinnar trúar. Við hin, sem hefjum á loft manngildisviðhorf þau sem upplýsing og nútími hafa leitt af sér, skulum leyfa þessu trénaða útskúfunarbákni að sigla sinn sjó.
kristni