Örvitinn

Fulham - Liverpool

Sótti leikinn með aðstoð bittorrent í dag, er að glápa á hann núna. Var reyndar í nokkrum vandræðum með að horfa á hann, vídeóið virkaði bara í 2-3 sek en fraus svo þó hljóðið virkaði áfram. Þurfti að sækja nýja útgáfu af divX codecum.

Veit náttúrulega allt um leikinn, en langar að sjá þetta með eigin augum :-)

00:25
Þetta var nú skárra en ég átti von á, Liverpool voru ekki jafn rosalega lélegir í fyrri hálfleik og ég gerði ráð fyrir, Fulham nýttu færin, Liverpool ekki. Í seinni hálfleik voru ágætir hlutir í gangi og þó tvö markanna hafi verið i ódýrari kantinum var sigurinn verðskuldaður að mínu mati. Diao var ekki jafn hrikalegur og maður hefði getað haldið, en það er náttúrulega ekki hægt að bera hann og Alonso saman.

boltinn