Gerið það fyrir mig, ekki vísa beint á skrár sem ég hýsi á þessum aumingja server. Ég er ekki með file sharing þjónustu og er nógu paranójaður útaf þessum fáu lögum sem ég set hingað inn. Þetta er ekkert stórkostlegt vandamál, en gerist af og til.
Ef þið sjáið eitthvað sniðugt og langar að benda öðrum á það, vísið þá á færsluna eða síðuna, ekki .mp3 skrána eða .jpg myndina. Takið að minnsta kosti fram hvaðan skráin kemur.
Þegar ég verð var við vísandir beint á skrár bregst ég við með því að færa skrárnar, setja þær bak við notendanafn og lykilorð eða í versta falli, fjarlægja þær. Reyndar er ég fyrir löngu búinn að loka á vísanir utanaðkomandi aðila beint á myndir en það er ekki jafn auðvelt að loka fyrir vísanir á .mp3 skrár. Veit einhver hvort audio/mp3 mime tagið er almennt notað, dugar að loka fyrir vísanir á það ?#
Veit ekki af hverju svona tittlingaskítur pirrar mig en hann gerir það samt :-)
Sæll. Ég er einn af þessum SNILLINGUM sem gerði þetta í grandalausu sakleysi mínu. Biðst innilegrar afsökunar á fávísi minni. Kemur ekki fyrir aftur. Lagið er hinsvegar algjör snilld ;-) Kveðja, Ágúst
|
www.flickr.com
|