Hundalógík
Þegar tekjutap kennara vegna verkfalls er reiknað má ekki draga frá 90.000 króna verkfallsbætur þar sem það eru ekki tekjur heldur eign, svona svipað og að taka pening af bankabók.
Jahá.
Matti Á. - 27/10/04 16:16 #
Það hlaut að vera, ég ætlaði nefnilega að vísa til þess að fyrst þegar ég sá athugasemd # á síðunni þinni áttaði ég mig ekki á því af hverju athugasemdin væri nafnlaus. Fór svo á síðuna þína og sá að Stefán hafði skrifað undir nafni, dró þá ályktun að mér væri farið að förlast :)
Már - 27/10/04 16:48 #
Athugasemdir birtast hjá mér á forminu "[Nafn] svarar: ..." sem þýddi að andsvör Herra Myllu birtust svona "# svarar:" og strax í 2. svari var Jói búinn að mislesa þetta og kallaði Herra Myllu "Svavar". Ég leiðrétti misskilninginn hljóðlega og henti inn "Stefán" í stað myllunnar.
Ég var hins vegar rétt í þessu að glugga í eldri færslur hjá Stebba, og sá þar færsluna þar sem hann kynnir listamannsnafnið "#" til sögunnar (fannst það alveg fyndið sko), en líkt og Prins var alltaf Prins í huga allra nema hans sjálfs, þá verður Stefán bara Stefán í minni dagbók. :-)