Örvitinn

Rusl

Í kvabbinu um sorphirðu borgarinnar sagði ég meðal annars.

Þegar ruslakarlanir mæta, opna þeir ruslageymsluna og kíkja eftir merkinu, ef það er ekki uppi skilja þeir tunnuna eftir óhreyfða, jafnvel þó hún sé full. Stundum jafnvel þó hún sé troðfull!

Þetta gerðist einmitt þessa helgi, ég gleymdi að setja helvítis merkið upp á tunnunni í síðustu viku og því skildu ruslakarlar eftir troðfulla tunnu. Ég verð því að lauma pokum í tunnur nágranna þessa vikuna.

kvabb