04.11.04

Bið eftir athugasemd stytt um helming

Fiktaði örlítið í Comments.pl skránni í MT í morgun og stytti tímann sem það tekur að endursmíða síðuna, eftir að athugasemd er sett inn, um helming. Tók áður rúma mínútu en er komið í um þrjátíu sekúndur.

Málið er að ég nota mt rebuild type mod en það hefur aldrei verið að virka eins og skyldi, rss yfirlitið hefur hingað til t.d. alltaf verið endurbyggt þegar athugasemd er sett inn.

Ég var að lesa yfir MT kóðann, ætlaði að smíða sér fall til að endursmíða færri skrár í þessum tilvikum og tók þá eftir því að það vantaði að setja aukaparameter þar sem kallað er á fall til að endursmíða indexa. Bætti þeim parameter inn og þá virkar þetta rebuild mod loksins almennilega.

Reyndar er 30 sekúndur ansi langur tími til að bíða eftir að athugasemd fari inn, en eina leiðin til að stytta þetta enn meira er að endursmíða bara síðuna með færslunni og setja svo af stað annan þráð eða process til að endursmíða forsíðuna og hliðarlistann. Sýnist samt vera bölvað vesen að nota fork í cgi forriti og veit ekki hvort ég nenni að standa í þessu.

Þetta er pælingar sem maður lendir í þegar maður notast við afskaplega úreltan tölvubúnað :-)

04.11.2004 16:59 movable type
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com