Örvitinn

Vaknað í hlandpolli

Í gærmorgun vaknaði ég við að Kolla ældi í rúminu mínu. Í morgun var Inga María búin að pissa í rúmið mitt. Kosturinn við þetta er að ég hef farið snemma á fætur báða morgna. Veit ekki alveg hvað ég á að gera við yfirdínuna, þyrfti að fara með hana í hreinsun - ef það er hægt.

Kolla er þokkalega hress í dag, ældi reyndar í morgun eftir fyrsta sprite sopann, en borðaði svo ristað brauð, eina og hálfa brauðsneið og drakk meira sprite. Sprite er að sjálfsögðu ekki vanalega í boði á morgnana, en þegar maður er með ælupest er gott að drekka eitthvað með sykri.

Liggjum undir teppi og horfum á Lion King 3.

fjölskyldan