Örvitinn

Stöð 2 í rugli

Stöð 2 er send út órugluð þessa stundina, ástæðan er sú að ekki er hægt að horfa á hana í gegnum stafrænu útsendinguna.

Þetta er nú meira vesenið á þeim - uss.

Digital Ísland er bilað

Ég held þeir ættu að draga úr auglýsingunum rétt á meðan þeir valda því ekki að keyra kerfið. Er nefnilega akkúrat að horfa á Sjáðu betur, sjáðu meira auglýsingu þegar þetta er ritað.

Auðvitað er það svo skandall að engar uppýsingar um þessi vandræði sé að finna á heimasíðu Digital Ísland. Þeir ættu að geta minnst á þetta undir tækniaðstoð en kjósa að þegja.

tækni