13.11.04

Milan Baros er maður dagsins

Fór á Players til að horfa á Liverpool-Crystal Palace. Mætti klukkutíma fyrir leik og fékk fín sæti, Regin kom skömmu síðar og Stebbi mágur mætti svo á svæðið þegar hálftími var liðinn af leiknum.

Liverpool sótti stíft í dag en Palace eru greinilega með hættulegt lið, skoruðu tvö og hefðu getað skorað tvö í viðbót með smá heppni og hliðhollri dómgæslu.

En Baros sá um þetta fyrir Liverpool, þrenna í dag og sigurmark á nítugustu mínútu. Það er stutt á milli þunglyndis og alsælu, á áttugustu og áttundu mínútu var ég á bömmer þegar Liverpool fékk boltann og sótti hratt fram, Kewell gaf snilldar sendingu innfyrir á Baros sem skýldi boltanum vel og fiskaði víti.

Djöfull var ég stressaður þegar hann tók vítið og hrikalega var ég feginn þegar boltinn lá í netinu. Magnaður andskoti.

Lenti í dálitlum vandræðum með að tengjast þráðlausa netinu á Players, fékk mun betri tengingu við skjávarpa heldur en Vodafone routerinn. Náði þó að tengjast að lokum.

13.11.2004 17:54 boltinn
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com