Örvitinn

Afmælisboð Ingu Maríu

Héldum upp á afmælið hennar Ingu Maríu í dag en hún verður þriggja ára á þriðjudaginn. Þetta byrjaði ekkert alltof vel, klukkutíma fyrir afmælið datt Inga María á þvottakörfu og skar sig milli höku og neðri varar (heitir þetta svæði eitthvað?). En sem betur fer var þetta ekki djúpt, bara skeina og hún var fljót að jafna sig.

Fjölskylda og vinir kíktu í dag og þáðu veitingar sem Gyða sá um. Inga María er ósköp ánægð með daginn held ég, fékk gommu af dóti og fötum.

Tók nokkrar myndir.

fjölskyldan