Örvitinn

Skilaboð til Stebba í New Orleans (myndavéladót)

Stebbi er í New Orlean að funda þessa vikuna. Ég bað hann um að kíkja fyrir mig á myndavélaíhluti þar sem dollarinn fæst næstum gefins þessa dagana.

Sendi SMS á Stebba áðan, veit ekki hvort það skilar sér. En hér eru semsagt skilaboðin í aðeins ítarlegri útgáfu ef hann skyldi kíkja á netið.

Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef grafið upp á netinu er slatti af verslunum með ljósmyndavörur við Canal Street. Þessar búðir eru þó margar vafasamar, stunda það að auglýsa vörur á fáránlega lágu verði en eiga þær svo ekki til þegar kúnninn mætir, reyna í staðin að pranga einhverju öðru á kúnnann. Þessi aðferð er kölluð bait & switch Ég held þó að manni sé óhætt að versla þarna svo lengi sem maður veit hvað maður ætlar að kaupa og á hvaða verðbili það má vera.

Ég sendi einnig tölvupóst á tvær verslanir við Metairie og bíð eftir svari. Þar er um að ræða Lakeside Camera og Bennett's Camera og Video. Spurning hversu mikið mál það er fyrir þig að kíkja á þessa staði, læt þig vita hvort þeir eiga þetta til og ef svo, hvort verðið er hagstætt.

nikon 50mm 1.8d linsaÞað sem ég er að falast eftir er annars vegar Nikon 50mm 1.8D linsa sem ætti að kosta um $100 + vsk. Þetta er lítil og ódýr linsa og ætti að vera fáanleg í dag, þó mikil eftirspurn hafi verið eftir henni. Hinsvegar SB-600 flass sem ætti að fást á $200-$250. Það borgar sig ekki fyrir mig að kaupa þetta úti ef þetta er dýrara en það. Ef SB-800 flassið er fáanlegt á rétt rúma $300 máttu gjarnan kaupa það og gefa mér mismuninn á því og SB-600 í afmælis og jólagjöf :-P

Linsan og flassið mega vera innflutt (gray market) því þar munar helst um ábyrgð í Bandaríkjunum og hún skiptir ekki nokkru máli í þessu tilviki. Samkvæmt því sem ég kemst næst er hægt að fá skattinn endurgreiddan á flugvellinum, ég get reynt að finna betri upplýsingar um þetta.

15:05 Svar frá Bennet's Camera

Yes we do stock both the SB-600 and Nikkor AF 50/1.8D.  The prices are

$109.00 for the lens and $249.00 for the flash.

15:55 Svar frá Lakeside Camera

We do have them both in stock. The lens is $129.00 and the flash $250.00. At uv filter for the lens would run you about $18.00.

Our Tax here is 8.75%. Let me know if you are gong to send him in, I will pull the items and have them ready. You can call if you like at 504-885-8660.

Samkvæmt þessari síðu er hægt að fá skattinn endurgreiddan í New Orleans

A local sales tax of 9% applies to all goods and services purchased in Orleans Parish, including food. Taxes outside Orleans Parish vary and are slightly lower.

Louisiana is the only state that grants a sales-tax rebate to shoppers from other countries who are in the country for no more than 90 days. Look for shops, restaurants, and hotels that display the distinctive tax-free sign and ask for a voucher for the 9% sales tax tacked on to the price of many products and services. Present the vouchers with your plane ticket at the tax rebate office at the Louis Armstrong New Orleans International Airport and receive up to $500 in cash back. If the amount redeemable is more than $500, a check for the difference will be mailed to your home address. Call the airport refund office at 504/467-0723 for complete information.

græjur