Örvitinn

Nikon SB-600 flass

nikon sb-600 flassJæja, flassið komið í hús. Agalega er þetta mögnuð græja. Hvað er svona merkilegt? Í fyrsta lagi er þetta öflugra en flassið á myndavélinni, en það flass er reyndar alveg þokkalegt. Í öðru lagi er náttúrulega hægt að beina þessu flassi t.d. upp í loft og fá þannig óbeina lýsingu. Í þriðja lagi er hægt að taka flassið af myndavélinni, skella því á þrífót og taka mynd, stjórna flassinu þráðlaust.

Ég á eftir að stúdera þetta heilmikið, en sé strax heilmikinn mun bara með því að nota flassið og bounca því af loftinu.

Hér er óskaplega jákvæð umfjöllun um SB-600.

græjur