04.12.04

Snillingarnir hjá póstinum (eða tollinum)

Gyða spurði mig áðan hvort við hefðum virkilega verið að kaupa bækur fyrir 14.000,00 kr. Ég kannaðist ekki við það, upphæðin var rétt um $114 sem er nú ekki nálægt þeirri tölu.

Haldið þið ekki að snillingarnir á póstinum eða tollinum hafi reiknað tollverð miðað við pund en ekki dollara. Á miðanum á kassanum fer ekki á milli mála að value er í US $, en dálítið við hlið heildar upphæðar stendur: Weight 5.75 pounds Þetta er eini staðurinn þar sem hugsanlega hefði verið hægt að ruglast á þessu.

Tollverð reiknað hjá þeim er 14.196,00 kr miðað við pund, en rétt verð miðað við gengi dollarans er um 7.100,00 kr.

Bendi fólki á að skoða þetta vel þegar það tekur á móti pökkum og greiðir tollinn eða vaskinn. Nú þarf ég að fara að ganga á milli manna til að fá endurgreitt það sem við ofgreiddum.

04.12.2004 12:24 kvabb
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com