Stressaður fyrir leik kvöldsins

Það er ekki laust við að ég sé stressaður fyrir leik kvöldsins.

Liverpool á að geta unnið þessa Grikki, en ég er agalega hræddur um að þeir kasti sér í grasið á Anfield í tíma og ótíma og komi þannig í veg fyrir að hægt sé að spila fótbolta, það gerðu þeir a.m.k. í fyrri leiknum. Vona bara að dómarinn standi sig betur en Collina þá. Sjaldan séð lið komast upp með jafn grófan leik annars vegar og jafn mikinn leikaraskap hins vegar.

Svo er bara að vona að Baros verði heill.

Merkilegt með þennan fótbolta, dagurinn er næstum því ónýtur :-) Hlusta á glaðværa tónlist til að þrauka fram á kvöld.

08.12.2004 13:14 boltinn
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com