Örvitinn

Morgunrakstur

Ég er afskaplega latur við að raka mig, raka mig helst ekki nema eitthvað standi til.

Í tilefni þess að það eru að koma jól og ég fæ gesti rakaði ég mig í morgun. Í tilefni þess að ég á nýjan gemsa tók ég mynd fyrir og eftir rakstur.

Myndgæðin eru ekkert til að hrópa húrra fyrir en það er hægt að hrópa húrra fyrir fyrirsætunni í staðin :-P

fyrir_rakstur.jpg

eftir_rakstur.jpg

dagbók
Athugasemdir

skúli - 23/12/04 14:07 #

Látum gæðin á símamyndavélinni liggja milli hluta - en ég held þú ættir að fá þér nýja rakvél! :>)

Matti Á. - 23/12/04 14:10 #

Ég er með afar dökka skeggrót, veit ekki hvort þetta verður miklu betra en þetta :-)

Spurning um að prófa nýtt rakvélablað næst, ég reyni að nota þau eins oft og hægt er!