Örvitinn

Kolla með hlaupabólu

hlaupabólurFór með Kollu á læknavaktina áðan til að staðfesta að hún væri með hlaupabólu. Læknirinn þurfti ekki að skoða bólurnar lengi, þurfti eiginlega ekki að skoða þær neitt.

Við erum tvö heima en hinar stelpurnar í jólaboði á Arnarnesi. Það fer ágætlega um okkur, Kolla borða beyglu með osti og skinku, ég gæði mér á kalkúnaafgöngum - aftur.

Fékk hlaupabólukrem í apótekinu, ber á Kollu þegar hana klæjar. Þetta á eftir að versna áður en það batnar.

fjölskyldan