Örvitinn

Feministar og terroristagvuð

Mér finnst þessar pælingar og viðbrögðin við þeim hjá Einari og Stefán skemmtileg.

Auðvitað sjá margir feministar nauðgun í hverju horni. Þau hafa einfaldlega tileinkað sér aðra aðferð en flestir aðrir við að skoða heiminn, aðferð sem byggist á því að túlka umhverfið með neikvæðum hætti - gera ráð fyrir að allt sem túlka má á neikvæðan hátt gagnvart konum hafi verið sett fram til þess að gera lítið úr konum. Að allt sem túlka með á neikvæðan hátt neikvætt.

Áhugaverður pistill á Vantrú um terroristann Guð og fróðlegar umræður - þó þær séu frekar einhæfar eins og er. Samt snúast þessar vangaveltur um eðli Guðs.

feminismi kristni
Athugasemdir

Már - 04/01/05 21:19 #

Ekki bara að þessi tegund af femínistum sjái nauðganir í hverju horni, heldur það sem verra er, þær leggja sig fram um að tengja kynlíf almennt við ofbeldi. Mér finnast þetta sjúk sjónarmið sem gera lítið úr bæði konum og körlum.

Birgir Baldursson - 04/01/05 21:34 #

Sammála. Og það sem verra er: Þær hafa að öllum líkindum náð í gegn með þetta hjá mörgum. Í mér situr a.m.k. djúpt og nánast dulin sú tilfinning að kynlíf sé ógeðslegt, hversu mjög sem ég reyni að sjá það í öðru og fegurra ljósi.

Ég veit ekki alveg hvort ég á að ákæra femínista eða kristnar trúarstofnanir fyrir þessi hryðjuverk á huga mínum. Ekki eru það Hustler og Penthouse sem bera á þessu ábyrgð, svo mikið er víst.