Örvitinn

Ekki vont þegar nálinni er stungið

Það er vont þegar konan segir, "nú kemur stunga" og maður bíður eftir sársauka - spennir sig upp.

Sársaukinn er svo aldrei neitt til að kippa sér upp við.

Annars var blóðþrýstingur í hærra lagi, 155/69. Var 143/69 í ágúst og 139/68 í maí. Tengist því kannski eitthvað að ég er pirraður og í afar slöku formi.

Auðvitað tók ég myndir.

blóðið lekur úr hendinni

dagbók myndir
Athugasemdir

sirry - 30/12/04 15:03 #

Þetta er ógeðsleg mynd. Ég er líka pirruð en það hjálpar þér ekki neitt.

Matti Á. - 30/12/04 15:06 #

Hvað er þetta með ykkur stelpurnar? Gyðu finnst þetta líka ógeðsleg mynd !

Mér finnst hún flott :-)