Og ég hata Frank Lampard, þessi andskoti fótbraut Xabi Alonso og hefði átt að fá rautt spjald fyrir.
Dómarinn hefði átt að dæma tvö víti á Chelsea í fyrri hálfleik. Riley sagði í hálfleik að síðara atvikið hefði verið "bolti í hönd" ! Uh, varnarmaður stekkur upp með hendurnar uppi og rænir Nunez skallafæri - dómarinn sá atvikið en ákvað að dæma ekki. Þetta er bara rugl.
Chelsea er drullulið - aumingjar sem voru mikli verri í þessum leik en skoruðu grísamark.
Svo vælir stjóri þeirra yfir því að hópurinn sé lítill! Liverpool vantaði Cisse, Baros og Kewell - auk þess að missa Xabi Alonso núna í einhverja mánuði eftir árás Lampard.
Þoli ekki fótbolta á svona dögum.
|
www.flickr.com
|