Örvitinn

Fótbolti og fyrirlestur

Í kvöld er tvennt sem mig langar að gera en að sjálfsögðu skarast það á. Annars vegar langar mig að sjá leik Liverpool og Watford, jafnvel þó það sé ekki gott fyrir andlega heilsu mína að horfa á Liverpool leiki þessa dagana.

Hinsvegar verður sýndur fyrirlestur með James Randi í Öskju.

Spurning um að fá einhvern til að taka leikinn upp og kíkja á hann eftir fyrirlesturinn.

Reyndar þarf ég að vinna frameftir til að ná átta tímum í dag - er heima með Ingu Maríu eins og er þannig að þetta á allt eftir að koma í ljós.

dagbók