Örvitinn

Akureyri næstu helgi

Er mjög líklega að fara til Akureyrar næstu helgi að spila fótbolta og djamma með bankamönnum.

Get gist á stofugólfi í íbúð ásamt nokkrum Landsbankamönnum, það ætti að duga. Tími ekki að eyða pening í hótelgistingu. Spurning hvort maður sníki gistingu hjá ættingjum. Ég er reyndar ekki í nokkru sambandi við ættingja fyrir norðan en það er önnur saga.

Held ég hafi síðast komið til Akureyrar 1998 í brúðkaupsferð, en þá gistum við hjónin og Áróra í penthouse íbúð sem SPV á í miðbænum.

Á reyndar eftir að redda flugi en það er smáatriði :-P

dagbók