Örvitinn

Lífið er endalaus lykkja

Ég var að spá í að vera með húfu í allan dag en tók hana af. Langar að snoða mig, a.m.k. fara í klippingu. Hef einu sinni snoðað mig, á fylleríi heima hjá Bjarna sumarið 1994. Var hálf laumulegur þegar ég kom heim morguninn eftir - með húfu á hausnum.

Held að fyrstu mánuðir ársins henti mér illa, a.m.k. gæti ég alveg kóperað þessa færslu suma daga.

Fótboltateiti helgarinnar fellur niður þar sem sá er ætlaði að hýsa það beilaði af óviðráðanlegum orsökum. Afar óheppilegt, mig langaði á fótboltafyllerí. Kannski langaði mig bara á eitthvað fyllerí! Jæja, það verður þá ædol kvöld með stelpunum í staðin :-O

Merkilegt símtal áðan - um það, eins og ýmislegt annað, verður ekki bloggað.

prívat